Marengstoppar

Marengstoppar

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Forhitið ofninn í 150°C.

Stífþeytið eggjahvítur og sykur, bætið vanillu út í og þeytið áfram.

Saxið súkkulaði mjög smátt og myljið kornflexið, blandið því ásamt lakkrískurli við deigið afar varlega.

Mótið kökurnar með teskeiðum og setjið á pappírsklædda ofnplötu.

Bakið við 150°C í 15–17 mínútur.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

3 stk eggjahvítur
200 g sykur
1 tsk vanilla
100 g Síríus suðusúkkulaði
150 g Síríus lakkrískurl
100 g mulið Kellogg's cornflakes