Piparkökur með stökku karamellukurli
Uppskrift
Leiðbeiningar
Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
Setjið hveitið, matarsóda, kanil, engifer, negul og salt í skál.
Þeytið saman smjör og púðursykur, bætið egginu út í og þeytið.
Bætið svo vanilludropum og sírópinu út í og þeytið.
Bætið þurrefnablöndunni saman við og hrærið þar til samlagað.
Útbúið kúlur úr deiginu og dýfið kúlunum ofan í karamellukurlið, raðið á smjörpappírsklædda ofnplötu með góðu millibili þar sem þær fletjast mikið út í ofninum.
Bakið í u.þ.b. 9-11 mín eða þar til endarnir eru byrjaðir að taka sig en miðjan er ennþá blaut.
Innihaldsefni
Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
200 g hveiti
1 tsk matarsódi
1 tsk kanill
3/4 tsk engiferkrydd
1/4 tsk negull
1/2 tsk salt
150 g púðursykur
100 g smjör
1 egg
1 tsk vanilludropar
3 msk síróp
150 g Sælkerabaksturs karamellukurl frá Nóa Síríus