Súkkulaðikex með Nóa Kroppi

Súkkulaðikex

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Þeytið egg og sykur vel, bætið við kakói.

Bræðið saman í potti smjör og súkkulaði við lágan hita.

Hellið því saman við eggjablönduna ásamt salti og hrærið vel saman.

Setjið Matarkex, Nóa Kropp og súkkulaðidropa saman við og hrærið varlega saman með sleif.

Klæðið bökunarform með filmu eða smjörpappír og hellið deiginu þar í.

Kælið.

Takið úr forminu og skerið í sneiðar.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

1 egg
1 dl sykur
2 msk Síríus kakóduft
120 g smjör
150 g Síríus rjómasúkkulaði
1⁄2 tsk salt
225 g Matarkex, skorið gróft
2 1⁄2 dl Nóa Kropp
1 dl Síríus hvítir súkkulaðidropar